Klassíski listdansskólinn - Álfabakka 14a - Sími 587 9030 og Grensásvegi 14 - Sími 534 9030

JA slide show
Nemendur sýna 17. júní
Þann 17. júní kl 14:30 sýna nemendur skólans brot úr dansverkinu Gosi á stóra sviðinu við Arnarhól.
 
Kennsla á annan í Hvítasunnu
13. júní verður kennsla í Allt á tánum námskeiðinu. kl 18:15
 
Opiđ Workshop međ Raven og Blauba! 14. Júní kl. 17:00-19:00
Danshópurinn Raven og Sænski hópurinn Blauba eru stödd á Íslandi í júní þar sem þau vinna að samstarfsverkefni sem ber heitið  ´Out of our Hands´ , en verkefnið heldur áfram næsta sumar í Norrköping í Svíþjóð. Í tengslum við verkefnið vill hópurinn bjóða upp á dans workshop fyrir almenning. Þar sem þáttakendur verða kynntir fyrir vinnuaðferðum hópsins í samstarfi við tónlistarmenn.
 
Workshopið byrjar á danstíma sem er gefinn af Sofia ´Sosso´Harryson og í seinni hlutanum lítum við á danssmíði og samsetningu hreyfinga.
 
Allir velkomnir – Frítt
 
14. Júní  kl. 17:00-19:00
Klassíski Listdansskólinn, Grensásvegur 14
 
Fleiri upplýsingar má finna á www.raven.is
Eða í síma: 861-7236
 
Allt á tánum!

Klassíski listdansskólinn.
Kennsla hefst 8. Júní til 22. Júní
Kennsla fer fram að Grensásvegi 14
Kennari Guðbjörg Astrid Skúladóttir
Verð 15.000.-

Alla virka daga kl 16:30 til 18:00

1. Kennsla á táskóm fyrir byrjendur.
2. Vinna í réttri líkamsstöðu á táskóm.
3. Kennt er undirstöðu atriði á tánum.
4. Styrkinga æfingar fyrir ökklana.
5. Sumar táskó æfingarnar eru æfðar fyrst á hálftá.

Alla virka daga kl 18:15 til 19:45
1. Kennsla á táskóm fyrir framhaldsnemendur.
2. Styrkinga æfingar fyrir ökklana.
3. Samsettar æfingar við stöngina og út á gólfi.
4. Farið verður yfir allar hornæfingar á táskóm.
5. Æfðir verða dansar úr þekktum dansverkum.


Skráning á [hér] hakið í "aukanámskeið" og tilgreinið neðst í athugasemd hvort námskeiðið er verið að sækja um.

 

 
Karakterdans sýning

Föstudaginn 27. maí sýna nemendur maí námskeiðsins.

 Atriði sem þau hafa verið að undirbúa. 

 Sýningin fer fram í húsnæði skólans að Grensásvegi 14 og hefst kl 17:00

allir velkomnir. 

 

 

 
Inntökupróf fyrir dansár 2011- 2012 hjá Klassíska listdansskólanum

Mánudaginn 23. maí mun Klassíski listdansskólinn vera með inntökupróf fyrir dansár 2011 - 2012.
Aldur 13 ára og eldri
Verð 2000kr ( gengur upp í skólagjöld)

Hefst með ballett tíma kl 18:00 til 19:30 (ef þú ert komin á táskó taktu þá með) og svo nútímadans tíma kl 19:45 til 20:45.

Tímarnir eru öllum opnir meira að segja ef fólk vill bara koma í danstíma

Mælt er með að fólk komi tímanlega, ykkur er velkomið að hita upp í studió skólans fyrir tímann.

Erum staðsett bakvið hótelið, keyrt er milli hótelsins og hljóðx. sjá kort

Upplýsingar og skráning í tölvupóst This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it

 
Nemendur sýna á vordögum í Mjódd

Vordagana í Mjódd dagana 5.-11 maí. Fyrirtæki og verslanir munu bjóða upp á tilboð og afslætti þessa daga ásamt uppákomu í göngugötunni í Mjódd á morgun laugardag frá kl. 13-16.

Nemendur skólans munu  sýna atriði á morgun kl 15:30.

 Allir velkomnir

 

Frístundarkort ÍTR

fristundakortid_nytt_hvitt.jpg

Klassíski listdansskólinn er nú hluti af Frístundarkorti ÍTR.
Kynntu þér málið.

Viðtals- og símatími skólans er opin virka daga milli 13:00-16:00 -Grensásvegi 14 - Sími 534 9030
Forsíđa

Klassísk listdansbraut

classic.gif

Klassísk listdansbraut er þriggja ára dansnám á menntaskólastigi. Skólinn veitir metnarfulla og góða þjálfun til að undirbúa nemendur til æðri dansnáms eða atvinnu. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi náð 16 ára aldri til að komast inn á listdansbrautina en undantekningar eru gerðar á nemendum með góða tæknikunnáttu og fyrirsjáanlega hæfileika. Nánar

Nútíma listdansbraut

modern.gif

Nútímalistdansbraut er þriggja ára dansnám á menntaskólastigi sem veitir metnaðarfulla og góða þjálfun til að undirbúa nemendur til frekara náms í háskóla bæði á Íslandi sem og erlendis. Á þessum þremur árum læra nemendur fjölbreytta hluti með það að markmiði að þjálfa þá áleiðis til þess að verða danslistamenn Nánar...

Grunnstig 8 - 15 ára

preschool.gif

Forskólinn er þriggja ára undirbúningur fyrir grunnnámið og veitir nemendum mikilvægan grunn fyrir frekara dansnám. Áherslurnar í forskólanum eru að kynna nemendur fyrir hinum klassíska ballet, byggja upp dansorðaforða hjá nemendum, kenna þeim að bera virðingu fyrir listinni jafnframt því að læra að beita líkama sínum á réttan hátt. Nánar...

Forskóli 3 - 7 ára

preschool.gif

Forskólinn er þriggja ára undirbúningur fyrir grunnnámið og veitir nemendum mikilvægan grunn fyrir frekara dansnám. Áherslurnar í forskólanum eru að kynna nemendur fyrir hinum klassíska ballet, byggja upp dansorðaforða hjá nemendum, kenna þeim að bera virðingu fyrir listinni jafnframt því að læra að beita líkama sínum á réttan hátt. Nánar...