| Kennarar |
|
|
|
Aðalkennarar við Klassíska listdansskólann eru:
Guðbjörg Astrid stofnaði Klassíska listdansskólann 1993 og hefur rekið hann síðan. Hún nam listdans í Þjóðleikhússkólanum á Íslandi, Norsku Óperunni í Osló og hjá velþekktum kennurum í London áður en hún hóf feril sinn sem atvinnudansari. Guðbjörg Astrid starfaði fyrst við dansflokk í Gautaborgar óperunni og dansaði þar í nokkur ár. Síðan flutti hún til Frankfurt og starfaði sem dansari við hin vel þekkta ballet í Frankfurt am Main óperu. Á ferli sínum sem dansari tók hún þátt í fjölda klassíkum dansverkum. Einnig dansaði Guðbjörg Astrid í þekktum nútímaverkum eftir þekktustu danshöfunda, til dæmis Balanchine og Neumeyer. Guðbjörg Astrid hefur haldið áfram að víkka þekkingarsvið sitt á listdansi með þátttöku í námskeiðum viða um heim, þar á meðal Ástralíu, Canada, Englandi, Bandaríkjunum og Svíþjóð. Hún hefur einnig lagt ríka áherslu á að kynna sér þróun í ,,dance medicine” og er meðlimur í IADMS (International Association of Dance Medicine & Science). Guðbjörg Astrid er höfundur Lötu stelpunar, kvikmynd fyrir yngri kynslóðina. Frumsýnd jóladag 1994.
Le Yin Premier dancer frá Pacific Northwest Ballet. Kennir klassískan ballet í haust hjá Klassíska listdansskólanum. Le hefur dansað með virtum dansflokkum eins og Houston ballet og Pacific Northwest Ballet dansflokk.
River Carmalt River lærði í Laban school of dancing í London. Hann hefur dansað víða, m.a. með hinum þekkta Punchdrunk flokki.
Kamila Barbara Jezierska Kama er kennari í listdansi og hreyfingu, leikkona, dansari og danshöfundur frá Torun, Póllandi. Hún lærði samkvæmisdansa í sjö ár en hefur einbeitt sér að nútímalistdansi frá 1996. Hún tók masterspróf í kennslufræðum og ,,socio-cultural animation (dance)” frá háskólanum í Zielona Gora, Póllandi. Kama hefur tekið þátt í fjölda alþjóðlegra verkefna, til dæmis með Step Text Dance Company (Maat) og Nachtlichter götu-dans-leikhúsinu í Bremen, Þýskalandi. Hún er meðhöfundur ,,Wycianka” verkefnisins sem var sýnt í nokkrum löndum Evrópu og hlaut ýmsar viðurkenningar, til að mynda fyrst verðlaun í XII International Presentation of Contemporary Dance Forms í Kalisz árið 2004. Kama hlaut einnig einstaklingsverðlaun fyrir ,,Stage expression” í því verki.
Kateryna Pavlova
Kateryna starfaði sem kennari á árunum 1994-2000 í Donezk í Úkraínu í barnadansflokknum. Þar kenndi hún klassískan dans, jazzdans og nútímadans og starfaði í dansflokknum ,,Donbass" sem dansari. Á sama tíma fór hún árlega í sýningarferð til Brasilíu með hópnum.
Forskóla kennarar Guðbjörg Astrid Skúladóttir Kateryna Pavlova Betzý Ósk Hilmarsdóttir Hildur Björk Möller Hildur Edda Gunnarsdóttir Sara Snædís Ólafsdóttir Hrafnhildur Einarsdóttir
Workshop (Styttri námskeið) Hrafnhildur Einarsdóttir
Kennarar sem hafa áður kennt í skólanum Pauline Huguet
Kennet Oberly
Kennet hóf atvinnuferil sinn sem dansari hjá Stuttgart Ballet í Þýskalandi undir stjórn John Cranko. Hann hefur starfað meðal annars hjá Maurice Bejart´s Ballet of the Twentieth Century, Boston Ballet, Houston Ballet og í Tivoli Pantomime Theatre, Kaupmannahöfn. Jessica Berkemeier trained extensively in both Classical Ballet and Contemporary Dance in Sydney, Australia. Her classical education included the completion of all Royal Academy of Dancing (RAD) examinations up to the Advanced Level, and extensive training in the Vaganova Technique of ballet. She performed as a principle dancer in the Premier State Ballet, Australia, in roles such as Aurora (Sleeping Beauty), Odette/Odile (Swan Lake), The Lilac Fairy (Sleeping Beauty) and The Sugar Plum Fairy (The Nutcracker), before moving to San Francisco where she performed as a Corps de Ballet dancer with the San Francisco Ballet. Her education in Vaganova technique was further enhanced in San Francisco, as was her experience of the highly popular Balanchine style of classical ballet, and she has carried all of the above methods forward into her teaching repertoire today. Omar Gordon Omar Gordon hóf dansþjálfun sína fyrir alvöru í Central School of Ballet, London. Hann varð meðlimur í Northern Ballet Theatre árið 1992 undir stjórn Christopher Gable. Yfir 6 ára tímabil dansaði hann þar og samdi ýmis hlutverk fyrir helstu sýningar flokksins og varð þess heiður aðnjótandi að verða aðaldansari í klassískum verkum, til dæmis í Rómeo og Júlíu, Svanavatninu, Don Quixote, Öskubusku, Giselle og Dracula. Omar flutti til Ítalíu árið 1998 til að einbeita sér að nútímadansi og varð meðlimur í Aterballetto Maurio Bigonzetti og dansaði með þeim í nútímadansverkum þvert yfir Evrópu og Suður-Ameríku. Hann fluttist til Frakklands árið 2000 og varð meðlimur í Ballet de L´Opera National de Lyon og fór í dansferðir með þeim um Evrópu, Asíu og Bandaríkin. Þar dansaði Omar í ýmsum verkum eftir þekkta danshöfunda, t.d. William Forsythe, Ohad Naharin, Mats Ek, Jiri Kylian, Maguy Marin og Nacho Duato.
Omar hefur verið sjálfstætt starfandi listamaður frá 2003 sem dansari, leikari, aðstoðarmaður danshöfunda eða kennari, fyrir ýmis verkefni og hátíðir. Má þar nefna ,,DanceManifest” Kaupmannahöfn (PazzoMezzo Ohad Naharin), Richard Alston Dance Company, Bretlandi (Joyce Theatre NY) og ,,GHOSTS” Cathy Marstons hjá Lindbury Theatre, Royal Ballet, Bretlandi, The Bare Bones ,,5 Man Show” Bretlandi, (Arthur Pita, David Massingham og Liam Steel, Stan Won’t Dance).
|
| Forsíđa |
| Námsframbođ |
| Umsókn í skólann |
| Um skólann |
| Hafđu samband |
| In English |
| The Summer Program 2010 |
Um skólann
Kennarar Klassísk listdansbraut er þriggja ára dansnám á menntaskólastigi. Skólinn veitir metnarfulla og góða þjálfun til að undirbúa nemendur til æðri dansnáms eða atvinnu. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi náð 16 ára aldri til að komast inn á listdansbrautina en undantekningar eru gerðar á nemendum með góða tæknikunnáttu og fyrirsjáanlega hæfileika. Nánar
Nútímalistdansbraut er þriggja ára dansnám á menntaskólastigi sem veitir metnaðarfulla og góða þjálfun til að undirbúa nemendur til frekara náms í háskóla bæði á Íslandi sem og erlendis. Á þessum þremur árum læra nemendur fjölbreytta hluti með það að markmiði að þjálfa þá áleiðis til þess að verða danslistamenn Nánar...
Forskólinn er þriggja ára undirbúningur fyrir grunnnámið og veitir nemendum mikilvægan grunn fyrir frekara dansnám. Áherslurnar í forskólanum eru að kynna nemendur fyrir hinum klassíska ballet, byggja upp dansorðaforða hjá nemendum, kenna þeim að bera virðingu fyrir listinni jafnframt því að læra að beita líkama sínum á réttan hátt. Nánar...
Forskólinn er þriggja ára undirbúningur fyrir grunnnámið og veitir nemendum mikilvægan grunn fyrir frekara dansnám. Áherslurnar í forskólanum eru að kynna nemendur fyrir hinum klassíska ballet, byggja upp dansorðaforða hjá nemendum, kenna þeim að bera virðingu fyrir listinni jafnframt því að læra að beita líkama sínum á réttan hátt. Nánar...