| Grunnstig 8 - 15 ára |
|
|
|
Að forskólanum loknum tekur við stigsnám í grunnskóla. Stigin eru frá 1 – 6. Ástundun nemanda eykst frá stigi til stigs, og þeir eru kynntir fyrir fleiri kennslugreinum. Áherslur kennara eru ávallt þær sömu, að veita einstaklingnum þjálfun og faglega leiðsögn við hæfi. Markmiðið skólans er sem áður að skapa umhverfi og hæfilega áskorun fyrir fyrir nemendur að njóta danslistarinnar og þroska hæfileika sína í henni.
|
Námsframbođ
Grunnstig 9 - 15 ára Klassísk listdansbraut er þriggja ára dansnám á menntaskólastigi. Skólinn veitir metnarfulla og góða þjálfun til að undirbúa nemendur til æðri dansnáms eða atvinnu. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi náð 16 ára aldri til að komast inn á listdansbrautina en undantekningar eru gerðar á nemendum með góða tæknikunnáttu og fyrirsjáanlega hæfileika. Nánar
Nútímalistdansbraut er þriggja ára dansnám á menntaskólastigi sem veitir metnaðarfulla og góða þjálfun til að undirbúa nemendur til frekara náms í háskóla bæði á Íslandi sem og erlendis. Á þessum þremur árum læra nemendur fjölbreytta hluti með það að markmiði að þjálfa þá áleiðis til þess að verða danslistamenn Nánar...
Forskólinn er þriggja ára undirbúningur fyrir grunnnámið og veitir nemendum mikilvægan grunn fyrir frekara dansnám. Áherslurnar í forskólanum eru að kynna nemendur fyrir hinum klassíska ballet, byggja upp dansorðaforða hjá nemendum, kenna þeim að bera virðingu fyrir listinni jafnframt því að læra að beita líkama sínum á réttan hátt. Nánar...