| Námsframbođ |
|
|
|
Klassíski listdansskólinn er einkarekinn dansskóli sem leggur sérstaka áherslu á þjálfun einstaklingsins, hann fái að þróa hæfileika sína frá upphafi, undir faglegri leiðsögn. Klassíski listdansskólinn leggur áherslu á þjálfun nemenda sinna í hinum hefðbundna, sígilda þætti listdansins, jafnframt því að kynna aðra dansstíla og nýjar þróanir á sviði dansins. Jákvæð hvatning og uppbygging nemenda í minni námshópum er stór þáttur í starfi skólans.
Eftirfarandi aldursskipting er algengust: 3 til 4 ára. Kennt 1x í viku laugardaga kl 10:00 til 10:45 1. Flokkur 5 til 6 ára. Kennt 1x í viku laugardaga kl 12:00 - 13:00 2. Flokkureru 6 ára. Kennt 1x í viku þriðjudaga kl 16:30 - 17:30 3. Flokkur 7 - 8. ára. Kennt 2x í viku mánudaga og fimmtudaga kl 15:00 - 16:30 Nánar 1. stig: 9 ára Kennt 3x í viku þriðju-, miðviku- og föstudaga 2. stig: 9 til 10 ára Kennt 3x í viku mánu-, þriðju- og fimmtudaga 3. stig: 10 til 12 ára Kennt 3x í viku þriðju-, miðviku- og föstudaga 4. stig: 10 til 12 ára Kennt 5x í viku mánu-, þriðju-, miðviku- fimmtu- og laugardaga 5. stig: 13 til 14 ára Kennt 5x í viku alla virka daga kl 15:30 - 17:00
Spuni er kenndur frá 8 til 9 ára aldri. Nemendur byrja á táskóm 10 ára aldri. Nemendur eru kynntir fyrir Cunningham og Martha Graham frá 10 ára aldri. Nánar
Framhaldsskólastig Nemendur sem sækja um 1.stig á listdansbraut á framhaldsskólastigi í klassískum ballet eða nútímadansi geta verið 13 ára og eldri. Listdansbraut Klassíska listdansskólans er þriggja ára dansnám á menntaskólastigi. Skólinn veitir metnaðarfulla og góða þjálfun til að undirbúa nemendur til æðri dansnáms eða atvinnu. Kennslu árið hjá Klassíska listdansskólanum skiptist í haust- og vorönn. Þriggja ára nám í klassískum listdansi gefur 69 einingar og nútímalistdansi 66 einingar að námi loknu hjá Klassíska listdansskólanum. Námið samsvarar 51 einingar á kjörsviði á listnámsbraut, metnar í framhaldsskóla. Nemendur sem ekki hafa náð 16 ára aldri eiga að geta fengið sínar einingar metnar í framhaldsskólum síðar. Allir áfangar eru kenndir af danslistamönnum sem vinna á alþjóðagrundvelli og eiga það sameiginlegt að hafa góða menntun og mikla kunnáttu á bak við sig. Áfangar á klassískri braut: Klassískur ballet Táskór Pas de deux (tvídans) Nútímalistdanstækni Danssmíði Listdanssaga Söguleg dansverk Nánar
Áfangar á nútímabraut: Nútímalistdanstækni Klassískur ballet Danssmíði Spuni Listdanssaga Skapandi dansverk Nánar
Nemendasýningar Skólinn heldur tvær vandaðar sýningar á ári hverju, jólasýningu og vorsýningu. Í lok hvers árs er vorsýnig haldin í Borgarleikhúsinu. Allir nemendur skólans taka þátt í sýningunni. Nemendurnir læra vönduð vinnubrögð og því fylgir mikið stolt að vera hluti af stórum og góðum hópi vina, sem hefur tekist í sameiningu að skila árangri, í erfiðum danssporum og tjáningu, eftir langan og strangan vetur.
Auka námskeið í boði í 10 vikur í haust. Námskeiðin byrja samkvæmt stundartöflu mánudaginn 30. águst. Prufutímar er samkvæmt studnartöflu dagana 24 til 28 ágúst.
|
Námsframbođ Klassísk listdansbraut er þriggja ára dansnám á menntaskólastigi. Skólinn veitir metnarfulla og góða þjálfun til að undirbúa nemendur til æðri dansnáms eða atvinnu. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi náð 16 ára aldri til að komast inn á listdansbrautina en undantekningar eru gerðar á nemendum með góða tæknikunnáttu og fyrirsjáanlega hæfileika. Nánar
Nútímalistdansbraut er þriggja ára dansnám á menntaskólastigi sem veitir metnaðarfulla og góða þjálfun til að undirbúa nemendur til frekara náms í háskóla bæði á Íslandi sem og erlendis. Á þessum þremur árum læra nemendur fjölbreytta hluti með það að markmiði að þjálfa þá áleiðis til þess að verða danslistamenn Nánar...
Forskólinn er þriggja ára undirbúningur fyrir grunnnámið og veitir nemendum mikilvægan grunn fyrir frekara dansnám. Áherslurnar í forskólanum eru að kynna nemendur fyrir hinum klassíska ballet, byggja upp dansorðaforða hjá nemendum, kenna þeim að bera virðingu fyrir listinni jafnframt því að læra að beita líkama sínum á réttan hátt. Nánar...
Forskólinn er þriggja ára undirbúningur fyrir grunnnámið og veitir nemendum mikilvægan grunn fyrir frekara dansnám. Áherslurnar í forskólanum eru að kynna nemendur fyrir hinum klassíska ballet, byggja upp dansorðaforða hjá nemendum, kenna þeim að bera virðingu fyrir listinni jafnframt því að læra að beita líkama sínum á réttan hátt. Nánar...