Klassíski listdansskólinn - Álfabakka 14a - Sími 587 9030 og Grensásvegi 14 - Sími 534 9030

JA slide show
Danshópurinn Uppsteyt sýnir dansverk 17. júní Print E-mail

Danshópurinn Uppsteyt sýnir dansverk á svölunum við Fríkirkjuveg 11 á milli kl. 14:30 og 16 og verða svo sýnilegar í Hljómskálagarðinum til kl. 17.

Hópinn skipa þær Auður Ragnarsdóttir, Unnur Ósk Stefánsdóttir og Katrín Þóra Sigurbjörnsdóttir en þær útskrifuðust úr framhaldsdeild Klassíska Listdansskólans vorið 2009.

Þær starfa nú sem sumarlisthópur hjá Hinu Húsinu með styrk frá Evrópu Unga Fólksins.

< Prev   Next >

Frístundarkort ÍTR

fristundakortid_nytt_hvitt.jpg

Klassíski listdansskólinn er nú hluti af Frístundarkorti ÍTR.
Kynntu þér málið.

Forsíđa

Klassísk listdansbraut

classic.gif

Klassísk listdansbraut er þriggja ára dansnám á menntaskólastigi. Skólinn veitir metnarfulla og góða þjálfun til að undirbúa nemendur til æðri dansnáms eða atvinnu. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi náð 16 ára aldri til að komast inn á listdansbrautina en undantekningar eru gerðar á nemendum með góða tæknikunnáttu og fyrirsjáanlega hæfileika. Nánar

Nútíma listdansbraut

modern.gif

Nútímalistdansbraut er þriggja ára dansnám á menntaskólastigi sem veitir metnaðarfulla og góða þjálfun til að undirbúa nemendur til frekara náms í háskóla bæði á Íslandi sem og erlendis. Á þessum þremur árum læra nemendur fjölbreytta hluti með það að markmiði að þjálfa þá áleiðis til þess að verða danslistamenn Nánar...

Grunnstig 8 - 15 ára

preschool.gif

Forskólinn er þriggja ára undirbúningur fyrir grunnnámið og veitir nemendum mikilvægan grunn fyrir frekara dansnám. Áherslurnar í forskólanum eru að kynna nemendur fyrir hinum klassíska ballet, byggja upp dansorðaforða hjá nemendum, kenna þeim að bera virðingu fyrir listinni jafnframt því að læra að beita líkama sínum á réttan hátt. Nánar...

Forskóli 5 - 7 ára