| Sumarnámskeiđ í nútímadansi |
|
|
|
Eftirfarandi tímar verða í boði í júlí Kennari: River 12.- 24. júní MEÐ GRUNN - 14 - 20 ára - Kennsla kl 17:00 - 18:30 (mán- föst) Tímarnir byggjast upp á grunnþjálfun í nútímalistdansi, styrkja teygja og samsettum sporum í nútímalistdansi. LENGRA KOMNIR - ADVANCED - 18 PLÚS - Kennsla kl 19:00 - 20:30 (mán- föst) Ætlað fyrir dansara sem hafa góðan grunn og vilja halda sér í formi í sumar.
26.- 30. júlí Tímar sem byggjast upp á grunnþjálfun með þjálfun í nútímatækni-, teygju- og styrktaræfingum. Í boði er: BYRJENDUR- 15 PLÚS - Kennsla kl 17:00 - 18:30 (mán- föst) STRÁKATÍMI - 15 - 20 ÁRA - Kennsla kl 19:00 - 20:30 (mán- föst) Sérstakt tilboð fyrir strákanámskeiðið: Verð á stökum tíma kr. 500 Verð á vikunámskeiði (mán-föst) kr. 2.000
VERÐ fyrir alla aðra tíma Stakur tími kr. 1.000 verð á vikunámskeið (mán - föst) kr. 4.000 50% afsláttur gegn framvísun danskortsins "DANCE.IS"
Æfir þú fimleika eða fótbola þá máttu fá 3 fría prufutíma 12-14 júlí eða vikuna 26 - 30 júlí
Skráning Sendið mail á This e-mail address is being protected from spam bots, you need JavaScript enabled to view it eða hringið/sms-ið í 616-2120
|
| < Prev | Next > |
|---|
Klassísk listdansbraut er þriggja ára dansnám á menntaskólastigi. Skólinn veitir metnarfulla og góða þjálfun til að undirbúa nemendur til æðri dansnáms eða atvinnu. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi náð 16 ára aldri til að komast inn á listdansbrautina en undantekningar eru gerðar á nemendum með góða tæknikunnáttu og fyrirsjáanlega hæfileika. Nánar
Nútímalistdansbraut er þriggja ára dansnám á menntaskólastigi sem veitir metnaðarfulla og góða þjálfun til að undirbúa nemendur til frekara náms í háskóla bæði á Íslandi sem og erlendis. Á þessum þremur árum læra nemendur fjölbreytta hluti með það að markmiði að þjálfa þá áleiðis til þess að verða danslistamenn Nánar...
Forskólinn er þriggja ára undirbúningur fyrir grunnnámið og veitir nemendum mikilvægan grunn fyrir frekara dansnám. Áherslurnar í forskólanum eru að kynna nemendur fyrir hinum klassíska ballet, byggja upp dansorðaforða hjá nemendum, kenna þeim að bera virðingu fyrir listinni jafnframt því að læra að beita líkama sínum á réttan hátt. Nánar...
Forskólinn er þriggja ára undirbúningur fyrir grunnnámið og veitir nemendum mikilvægan grunn fyrir frekara dansnám. Áherslurnar í forskólanum eru að kynna nemendur fyrir hinum klassíska ballet, byggja upp dansorðaforða hjá nemendum, kenna þeim að bera virðingu fyrir listinni jafnframt því að læra að beita líkama sínum á réttan hátt. Nánar...