| Klassíski listdansskólinn |
|
|
|
KLASSÍSKI LISTDANSSKÓLINN -HVATNING - METNAÐUR - ÁRANGUR Klassíski listdansskólinn er einkarekinn dansskóli sem leggur sérstaka áherslu á þjálfun einstaklingsins, hann fái að þróa hæfileika sína frá upphafi, undir faglegri leiðsögn. Klassíski Listdansskólinn leggur áherslu á þjálfun nemenda sinna í hinum hefðbundna, sígilda þætti listdansins, jafnframt því að kynna aðra dansstíla og nýjar þróanir á sviði dansins. Jákvæð hvatning og uppbygging nemenda í minni námshópum er stór þáttur í starfi skólans. Skólinn var stofnaður 1993 af Guðbjörgu Astrid Skúladóttur, sem á að baki langan feril á sviði listdansins. Klassíski listdansskólinn er viðurkenndur af menntamálaráðuneytinu. Skólinn mun hér eftir starfa eftir námskrá ráðuneytisins, sem gefur nemendum skólans tækifæri til að fá nám sitt metið sem hluta af framhaldsnámi þeirra.Nemendur 16 ára og eldri fá nám sitt metið úr listadeild Menntaskólans við Hamrahlíð.
Nám í Klassíska listdansskólanum skiptist í
Allir áfangar eru kenndir af danslistamönnum sem vinna á alþjóðagrundvelli og eiga það sameiginlegt að hafa góða menntun og mikla kunnáttu á bak við sig.
|
Um skólann Klassísk listdansbraut er þriggja ára dansnám á menntaskólastigi. Skólinn veitir metnarfulla og góða þjálfun til að undirbúa nemendur til æðri dansnáms eða atvinnu. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi náð 16 ára aldri til að komast inn á listdansbrautina en undantekningar eru gerðar á nemendum með góða tæknikunnáttu og fyrirsjáanlega hæfileika. Nánar
Nútímalistdansbraut er þriggja ára dansnám á menntaskólastigi sem veitir metnaðarfulla og góða þjálfun til að undirbúa nemendur til frekara náms í háskóla bæði á Íslandi sem og erlendis. Á þessum þremur árum læra nemendur fjölbreytta hluti með það að markmiði að þjálfa þá áleiðis til þess að verða danslistamenn Nánar...
Forskólinn er þriggja ára undirbúningur fyrir grunnnámið og veitir nemendum mikilvægan grunn fyrir frekara dansnám. Áherslurnar í forskólanum eru að kynna nemendur fyrir hinum klassíska ballet, byggja upp dansorðaforða hjá nemendum, kenna þeim að bera virðingu fyrir listinni jafnframt því að læra að beita líkama sínum á réttan hátt. Nánar...
Forskólinn er þriggja ára undirbúningur fyrir grunnnámið og veitir nemendum mikilvægan grunn fyrir frekara dansnám. Áherslurnar í forskólanum eru að kynna nemendur fyrir hinum klassíska ballet, byggja upp dansorðaforða hjá nemendum, kenna þeim að bera virðingu fyrir listinni jafnframt því að læra að beita líkama sínum á réttan hátt. Nánar...