| Forskóli yngri nemenda |
|
|
|
Forskólinn er undirbúningur fyrir grunnnámið og veitir nemendum mikilvægan grunn fyrir frekara dansnám. Áherslurnar í forskólanum eru að kynna nemendur fyrir hinum klassíska ballet, byggja upp dansorðaforða hjá nemendum, kenna þeim að bera virðingu fyrir listinni jafnframt því að læra að beita líkama sínum á réttan hátt. Forskólinn er tvískiptur þar sem 1. og 2. flokkur eru fyrir yngstu nemendurna frá 5 til 6 ára og 3.flokkur er fyrir nemendur sem eru 7 ára og eldri. Nýtt námskeið sem hefur göngu sína í vetur er 3 til 4 ára á laugardögum kl 10:00 - 10:45 Hildur Betzý Ósk Hilmarsdóttir og Hildur Gunnarsdóttir kenna forskólanemendum, 5 og 6 ára.
1. og 2. flokkur Nemendur í 1. og 2.flokk stunda ballet einu sinni í viku í klukkutíma í senn. Lögð er áhersla á að kynna nemendur fyrir listinni og grunnþætti balletsins, kenna þeim að vinna saman og virða hvert annað, jafnframt því að þau læri að skynja takt og að leysa sköpunargleðina úr læðingi. Þetta er gert með einföldum æfingum og skapandi dansi. Mikið er lagt upp úr því að kennslan sé persónuleg og að kennarinn geti sinnt hverjum nemanda af kostgæfni. Þess vegna er fjöldi nemenda í hverjum hópi takmarkaður og ásamt kennara með mikla reynslu og kunnáttu á sínu sviði. 3. flokkur Nemendur í 3.flokki stunda ballet tvisvar sinnum í viku í einn og hálfan klukkutíma í senn. Lögð er áhersla á byggja upp góðan grunn hjá nemendum með því að kenna þeim grundvallaratriðin í klassískum ballet. Nemendur læra að beita líkama sínum á réttan hátt og lögð er áhersla á vandvirkni og nákvæmni hreyfinganna sem nemendur búa síðan að alla tíð og fleytir þeim áfram í frekari danssnámi. Lögð er áhersla á samskipti nemenda og þeim kennt að vinna saman sem einn hópur þar sem allir fá að blómstra. Skapandi dans er einnig mikilvægur þáttur af náminu þar sem sköpunargleði nemenda er virkjuð og þeir fá tækifæri til að tjá sig með danshreyfingum og vinna saman að stuttum dönsum. Samtvinnað danskennslunni eru nemendur kynntir fyrir listgreinini og helstu dansverkum sem sköpuð hafa verið gegnum tíðina. Í lok hvers árs er haldin nemendasýning þar sem allir nemendur skólans taka þátt. Nemendur læra dansa sem þeir sýna og læra þau öguðu vinnubrögð sem því fylgir að stíga á svið og upplifa gleðina og stoltið sem því fylgir að koma fram. |
Námsframbođ
Forskóli 3 - 8 ára Klassísk listdansbraut er þriggja ára dansnám á menntaskólastigi. Skólinn veitir metnarfulla og góða þjálfun til að undirbúa nemendur til æðri dansnáms eða atvinnu. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi náð 16 ára aldri til að komast inn á listdansbrautina en undantekningar eru gerðar á nemendum með góða tæknikunnáttu og fyrirsjáanlega hæfileika. Nánar
Nútímalistdansbraut er þriggja ára dansnám á menntaskólastigi sem veitir metnaðarfulla og góða þjálfun til að undirbúa nemendur til frekara náms í háskóla bæði á Íslandi sem og erlendis. Á þessum þremur árum læra nemendur fjölbreytta hluti með það að markmiði að þjálfa þá áleiðis til þess að verða danslistamenn Nánar...
Forskólinn er þriggja ára undirbúningur fyrir grunnnámið og veitir nemendum mikilvægan grunn fyrir frekara dansnám. Áherslurnar í forskólanum eru að kynna nemendur fyrir hinum klassíska ballet, byggja upp dansorðaforða hjá nemendum, kenna þeim að bera virðingu fyrir listinni jafnframt því að læra að beita líkama sínum á réttan hátt. Nánar...
Forskólinn er þriggja ára undirbúningur fyrir grunnnámið og veitir nemendum mikilvægan grunn fyrir frekara dansnám. Áherslurnar í forskólanum eru að kynna nemendur fyrir hinum klassíska ballet, byggja upp dansorðaforða hjá nemendum, kenna þeim að bera virðingu fyrir listinni jafnframt því að læra að beita líkama sínum á réttan hátt. Nánar...