Klassíski listdansskólinn - Álfabakka 14a - Sími 587 9030 og Grensásvegi 14 - Sími 534 9030

JA slide show
Klassísk listdansbraut Print E-mail

Klassísk listdansbraut er þriggja ára dansnám á menntaskólastigi. Skólinn veitir metnarfulla og góða þjálfun til að undirbúa nemendur til æðri dansnáms eða atvinnu. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi náð 16 ára aldri til að komast inn á listdansbrautina en undantekningar eru gerðar á nemendum með góða tæknikunnáttu og fyrirsjáanlega hæfileika. Nemendur geta valið brautina í samráði við þann framhaldsskóla sem þeir stunda nám við. Nemendur stunda þar með kjörsviðið (klassíska listdansbraut) við Klassíska Listdansskólann en grunnfögin eins og íslensku, stærðfræði, ensku, dönsku og önnur fög við viðeigandi framhaldsskóla. Hafa ber í huga að þar sem tímasókn er suma daga á morgnanna og í hádeginu getur verið einfaldara að stunda grunnfögin við framhaldsskóla með fjölbrautakerfi heldur en bekkjarkerfi.

Nemendur sem sækja um 1.stig á listdansbraut á framhaldsskólastigi í klassískum ballet geta verið 13 ára og eldri. Nemendur sem ekki hafa náð 16 ára aldri eiga að geta fengið sínar einingar metnar í framhaldsskólum síðar.

Að loknu þriggja ára námi við klassísku listdansbrautina hafa nemendur öðlast styrkan grunn sem fleytir þeim til frekara náms á sviði danslista. Það getur mótað upphafið að starfsferli á því sviði eins og atvinnu nútímadansari, danshöfundur, danskennari, dansgagnrýnandi, dansfræðingur, dansvísindamaður, dans meðferðarfulltrúi, danshreysti þjálfari eða dansverkefnastjóri.

Áfangar á klassískri braut:

  •  
    •  
      • Klassískur ballet
      • Táskór
      • Pas de deux (tvídans)
      • Nútímalistdanstækni
      • Spuni
      • Danssmíði
      • Listdanssaga 
      • Söguleg dansverk
 
Forsíđa arrow Námsframbođ arrow Klassísk listdansbraut

Klassísk listdansbraut

classic.gif

Klassísk listdansbraut er þriggja ára dansnám á menntaskólastigi. Skólinn veitir metnarfulla og góða þjálfun til að undirbúa nemendur til æðri dansnáms eða atvinnu. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi náð 16 ára aldri til að komast inn á listdansbrautina en undantekningar eru gerðar á nemendum með góða tæknikunnáttu og fyrirsjáanlega hæfileika. Nánar

Nútíma listdansbraut

modern.gif

Nútímalistdansbraut er þriggja ára dansnám á menntaskólastigi sem veitir metnaðarfulla og góða þjálfun til að undirbúa nemendur til frekara náms í háskóla bæði á Íslandi sem og erlendis. Á þessum þremur árum læra nemendur fjölbreytta hluti með það að markmiði að þjálfa þá áleiðis til þess að verða danslistamenn Nánar...

Grunnstig 8 - 15 ára

preschool.gif

Forskólinn er þriggja ára undirbúningur fyrir grunnnámið og veitir nemendum mikilvægan grunn fyrir frekara dansnám. Áherslurnar í forskólanum eru að kynna nemendur fyrir hinum klassíska ballet, byggja upp dansorðaforða hjá nemendum, kenna þeim að bera virðingu fyrir listinni jafnframt því að læra að beita líkama sínum á réttan hátt. Nánar...

Forskóli 5 - 7 ára

preschool.gif

Forskólinn er þriggja ára undirbúningur fyrir grunnnámið og veitir nemendum mikilvægan grunn fyrir frekara dansnám. Áherslurnar í forskólanum eru að kynna nemendur fyrir hinum klassíska ballet, byggja upp dansorðaforða hjá nemendum, kenna þeim að bera virðingu fyrir listinni jafnframt því að læra að beita líkama sínum á réttan hátt. Nánar...